Jarðskorpan er ysta jarðlag jarðarinnar. Það eru tvær gerðir jarðskorpu, meginlandsskorpa og hafbotnsskorpa. Meginlandsskorpan er 20 – 70 km þykk og eðlismassi meginlandsbergs er um 2,7 g/cm3. Hún flýtur á möttlinum. Hafbotnsskorpan er 6-7 km þykk. Hún er úr þyngri og málmríkari efnum en meginlöndin. Eðlismassi hafbotnsbergs er um 3-3,3 g/cm3.