Jarðskjálftar verða á hverjum degi en flestir jarðskjálftar eru það litlir að við finnum ekki fyrir þeim. Þeir eru undir 5 stigum á Richter skala. Stærsti skálfti sem mælst hefur var í Chile 22. maí árið 1960 var sá skjálti 9,5 á Richter skala og dóu um 2.000 manns. Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur á Íslandi var Suðurlandsskjálftinn árið 1789 sem var 7,5 á Richter skala. Mannskæðustu skjálftarnir fara ekki endilega eftir því hve sterkir þeir eru, heldur hvar þeir verða, hve þétt byggðin er og eftir styrkleika húsanna. Eins og til dæmis jarðkjálftinn sem varð í Haítí í janúar 2010 var 7 stig á Richter skala en 316.000 manns dóu. Sá skjálfti var jafn stór og Suðurlandsskjálftinn árið 1784 og þar dóu þrír. Það farast mörg þúsund manns af völdum jarðskjálfta á hverju ári.